UPPLÝSINGAR
Hafist var handa við steinsteypt svið í Herjólfsdal árið 2010
Sviðið er um 300 fermetrar og á tveimur hæðum . Byggingin er klædd með grjóti og torf sett á þak hennar svo hún falli betur að umhverfinu. Það er í líkingu við útlit Herjólfsbæjar sem hefur verið endurgerður í dalnum. Aðstaða fyrir tónlistarfólk er innréttuð í öðrum enda sviðsins, í hinum verði svæði fyrir tækjabúnað og tæknifólk. Sviðið er stór uppfærsla fyrir alla umgjörð mynd-, hljóð- og ljósabúnaða. Með þessari framkvæmd vildi ÍBV Íþróttafélag byggja upp aðstöðu til framtíðar en á hverju ári hafði verið mikill kostnaður við flutninga og uppsetningu á gámaeiningunum sem mynduðu svo stóra sviðið. Með þessari byggingu var verið að hugsa til framtíðar og að létta undirbúningsvinnuna.
Tpz Teiknstofa sá um Alhliða hönnun á byggingu